Halló.
Ég er akkurat núna í vinnunni. Er búin að vera á næturvöktum og
sólarhringurinn hjá mér er alveg komin í rugl! Er búin að horfa
mikið á Friends á vöktnum og það þýðir þá að ég mun næstu
daga vitna óþarflega mikið í þá í öllum mínum samræðum
En
það er bara gaman!!!
Það sem ég hef fyrir stafni um helgina er að fara á ættarmót sem
ég held reyndar að verði snilld
Og kannski að maður kíki á
Hríseyjarhátíðina. Paparnir að spila!!! Ég hef nefninlega aldrei
farið á Hríseyjarhátiðina og það er alveg glatað! Eða ég hef
skroppið í smá stund en ég hef aldrei farið og gist og djammað.
Vona bara að þetta verði góð helgi í faðmi fjölskyldunnar þar sem
að ég er bara að fara fara og ég á eftir að sakan allra svo og
vonandi þau mín
Ég vona að ég muni einhvern tíman finna prinsinn á hvíta
hestinum!!! Ég varð agalega sorgmædd þegar ég var stödd í
afmælisboði hjá henni Klöru minni og hún og Pétur agalega
hamingjusöm. Nýtrúlofuð og búin að eignast fallega stelpu! Sem er
alveg yndislegt og ég er svo ótrúlega ánægð fyrir þeirra hönd
En
ég veit að hann kemur ekki til mín strax, þar sem að ég er að fara
til Þýskalands og og planið er allavegana að ekki finna mér hann
þar og ég held að ansi margir séu sammála mér í því
En hei
kannski finn ég hann á Mallorca!!! Hvernig líst ykkur á það
Ekki
slæmt, einhver spanjóli, á moldríka foreldra og svona!!!
Úlalala...
En ég á eina viku eftir í vinnunni, svo er það Mallorca í 2
vikur og stoppa á Íslandi í viku og síðan bara Germany here i
come

En ég ætla að fara heim og sofa í hausinn á mér. Löng helgi og
hafið það gott um helgina.
Later.... Hógga ( Ég er að hugsa að láta kalla mig þetta
Það
er Gömul kona á Dalbæ sem heitir Þórgunnur og hún er stundum kölluð
Hógga.... Mér finnst það kúl