Þórgunnur Lilja.....

16.04.2007 14:15:14 / lilja86

Seinasta bloggið!!!!

Maður spyr sig afhverju ég er að reyna halda þessu blessaða bloggi uppi?????? Ég hef engan tíma né áhuga á því... og örugglega ekkert gaman að lesa um líf mitt þessa dagana!

Þess vegna held ég að ég leggi þetta blogg niður hér með!

Hver veit nema að ég byrji aftur síðar!!!!

Bið að heilsa gott fólk!

Þórgunnur  Lilja


» 7 hafa sagt sína skoðun

06.04.2007 13:08:34 / lilja86

Kypur!!!!

Godan daginn gott folk!

Eg sit her a mjog svo skritnu netkaffi og verdid tid ad afsaka tessa skrift!

Af mer er allt agaett ad fretta. Vid erum buin ad hafa tad mjog gott nema ekkı nogu mikil sol fyrır mig. Engin sol i dag og i gaer og tveir adur en tad! En eg hef 2 daga i vidbot til ad tanast almennilega! Eg er buin ad versla alveg helling... enda alls ekki dyrt ad versla her. eg keypti mer utskriftardressid i dag og eg sagdist vera haett fyrır tad en madur veıt adlrei:D

Langadı bara ad henda inn nokkrum ordum allt gengur vel en hlakka eg samt til ad koma heim ta serstaklega til ad hitta astmann minn.....

Hafid tad gott i friinu gott folk... sjaumst eftir helgi... eg mun vera a ak a manudaginn!!!

blessbless


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.03.2007 13:40:02 / lilja86

Kýpur here i come

Já gjörðu svo vel Björk mín:)!!!!!

Neinei segi bara svona....

Allt ágætt að frétta af mér... Náði mér samt í leiðinda pesti um helgina og er búin að liggja! Skellti mér í skólann í dag en það var reyndar ekki sniðugt!!!!

 En ég hugsa bara um eitt þessa dagana... Ég er að fara til Kýpur kl 7 á föstudagsmorgun:) jeiiiiii ég er svo spennt að ég er að deyja! Ætlum að skella okkur öll fjölskyldan yfir páskana og verður það sjálfsagt mikið fjör! Samt eitthvað bölvað ves hjá henni Allý systur þannig að vonandi kemst hún samt með okkur!!!!

jæja... ég hugsa til ykkar hérna heima á meðan ég ligg í sólbaði með kokteil í hönd:) nammmmmm

Gleðilega páska....


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.03.2007 13:52:27 / lilja86

Draumar!!!

Hversu mikið má maður trúa á stjörnuspár og draumaráðningar????

Það er nefninlega það! Ég nefninlega trúa rosalega mikið á svona.... En ég reyni nú ekki að lifa alveg eftir þessu en það er samt svo oft mikið til í þessu!

En undanfarnar nætur er mig búið að dreyma bara vonda drauma:/ Og t.d í nótt þá dreymdi mig um eyrun mín. Þau voru afmynduð eitthvað.... Og ég fór inn á draumur.is og leitaði að því. Sjáið hvað það gæti þýtt:

Að dreyma eyru sín aflöguð eða særð táknar mikla erfiðleika og vonbrigði.

Þetta er frekar svona leiðinleg spá!!! Þetta á eftir að vera fast í hausnum á mér næstu dag.... Vona að þetta rætist ekki:/

En nóg af þessu...

Afmælisdagurinn var nokkuð góður:) Gerði mest lítið um daginn... beið bara þangað til að fólk myndi láta sjá sig... síðan fór fólk að týnast og það var borðað, drukkið, hlegið farið í leiki og dansað:=) Mjög gaman !!! Fékk fullt af flottum og fallegum gjöfum. TAkk takk enn og aftur!

Hjá mér er GEÐVEIKISLEGA mikið að gera í skólanum!!! Svaf ekki í nótt vegna stress... þá er ástandið orðið nokkuð slæmt hefði ég haldið!!! Sé fram á að helgin eigi ekki eftir að vera neitt sérstaklega góð.... það er ritgerðarsmíði, fyrislestur og lestur á 4 bókum!! Já ég hef bara gaman af þessu:)heheheh

Jæja... orðið gott hérna...

bleble


» 5 hafa sagt sína skoðun

10.03.2007 13:47:57 / lilja86

afmæli afmæli!!!

 

Já kella á afmæli í dag:) Ég er komin á þrítugsaldurinn!!! Dagurinn er búinn að vera góður þangað til allavegana núna. Er búin að bjóða til smá veislu... en frekar svona í rólegri kantinum! Ætla að bjóða upp á ýmislegt og svo verður bara að láta ráðast úr kvöldinu:)

Þið sem komið ... hlakka til að sjá ykkur... þið hin sem sáuð ykkur ekki fært að mæta hlakka til að sjá ykkur næst!!!

 bleble


» 7 hafa sagt sína skoðun

27.02.2007 10:36:25 / lilja86

Reykjavík

 

Já góðann daginn.

Skrapp til Reykjavíkur um helgina! Flaug suður á laugardagsmorgun og hitti Heiðu vinkonu. Skruppum aðeins í Kringluna og ég keypti mér eina peysu:) Pælið í því... helv fínt að vera buin að ákveða hvað maður ætli að kaupa!!!! Keyrðum svo í sumarbústað og höfðum það mjög kósí ! Elduðum góðan mat, spiluðum og fórum í pottinn:) Reyndar spiluðum við eitthvað spil sem heitir Fibulfan..... ekki skemmtilegt spil:) Ekki alveg ég!

Síðan á sunnudaginn skrapp ég til að hitta ástmann minn og fórum í bláa lónið og svo til Grindavíkur:) Það var alveg geggjað í bláa lóninu... hef ekki farið þangað síðan ég var lítil! Brunaði svo í borgina um kvöldið og flaug snemma í gær!

Þetta var mögnuð helgi og akkurat sem ég þrufti á að halda... smá frí!!!!

Er reyndar veik heima núna.... má ekkert vera af´því að vera veik! Brjálað gera í skólanum... en þetta reddast!

Jæja... það styttist óðum í afmælið mitt.... Ætli maður reyni ekki að gera eitthvað! Kemur í ljós:)

Bið að heilsa gott fólk


» 9 hafa sagt sína skoðun

14.02.2007 14:17:38 / lilja86

lakhgalh

 

Haldiði ekki bara að ég hafi verið svona sleip á skíðunum!!! Ég lýg því ekki... gömlu skíðataktarnir eru þarna ennþá:) Var samt ekki eins slung að koma mér í stólalyftuna eins og að skíða niður!!! hehehe

Annars er bara gott að frétta af mér.... Mér líður bara ágætlega þessa dagana... Alveg meira en nóg að gera alltaf! Vikan er svo fljót að líða að það er eiginlega bara frekar óþægilegt!!!! Verkefnin, ritgerðir og fyrirlestrar hlaðast upp:/ En þetta reddast alltaf:)

Valentínusardagurinn er víst í dag.... en ég svo sem ætla ekkert að halda upp á hann! Enda finnst mér þessi dagur ekki eiga heima hér á landi! Sammála??????

Ætla að vinna um helgina og gera eitthvað af mér í leiðinni! Það er þorrablót á Dalbæ á föstudaginn og Dagbjört ætlar að sjá til þess að ég eigi eftir að skemmta mér vel og sjálfsagt fá mér í aðra tánna.... en þá líka bara aðra!!!! Síðan á laugardaginn er afmæli enda er maður orðinn svo slappur í þessu að kannski kominn tími til að ég geri eitthvað af mér:)

En allavegana... stutt blogg í dag....

Later


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.02.2007 10:18:04 / lilja86

Here you go folks

Eftir mikið suð og tuð þá ákvað ég að henda inn smá bloggi!!!!!

Fékk gott hláturskast hérna rétt áðan... skældi bara og læti!!!! Sat fram í gryfju með Ísaki, Ingunni og einhverjum Dalvíkingum og fór allt í einu að hugsa um nike gula og bláa anorjakkinn minn! Muniði eftir honum:)? Allavegana þá sá ég mynd hjá Allý systur minn ekkert fyrir svo löngu þar sem ég aðal gellan klæddi mig upp á útskriftinni hennar og mætti í höllina í bláum þröngum kjól með klaufum á báðum hliðum og í JAKKANUM yfir!!!! Tískuslys dauðans! Ég allavegana verð að reyna nálgast þessa mynd til þess að sanna fyrir ykkur hversu hallærisleg ég var!!!

Annars er nóg að gera í skólanum... er að drukkna úr vinnu:S Mér finnst bara fínt að keyra á milli.... alltaf gott að koma heim til Dalvíkur!

Er byrjuð á fullu í ræktinni.... vöðvarnir hlaðast upp alveg.... ég tek alla kallana í bekkpressu með 200 kg:) hahahaha

Ætla skella mér suður helgina 24 febrúar til að hitta Heiðu og bumbos:) Ætlum að fara í sumarbústaðinn hjá ömmu hennar og hafa það kósí! Það verður ekkert verslað og ekkert djúsað:)

Well.... held þetta sé komið nóg.... eða nei reyndar ekki.... Ætla að fara á skíða á morgun með skólanum!!! Hef ekki stigið á skíði síðan stóra skíðaferlinum  minum lauk! Hef t.d aldrei komið upp í hlíðarfjall þannig að ég kvíði smá en Guðrún ætlar að hjálpa mér í gegnum þetta:)

Bið að heilsa gott fólk.....

Hógga Litla


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.01.2007 12:55:57 / lilja86

Slappleiki og draumalandið

Orðin frekar svona slöpp í þessu bloggi.... er búin að vera hugsa um að hætta bara með það!!!! Hef engan tíma til þess að drita niður línum. Ég er í geðveikt miklum skóla og ég sé fram á það að líf mitt verði lítið spennandi fram að páskum kannki:) Því þá fer ég til Kýpurs með fjölskyldunni:lol:

Hérna er nokkuð skemmtileg lína úr bók Andra Snæ, Draumalandið:

.....Á Íslandi vinna innan viið 12 þús manns við fiskveiðar eða fiskvinnslu. Þessir 12 þús veiða og verka fisk eða bræða um 12 milj tonna af fiski. Það er um 7000 kíló á hvern íslending. 28 tonn á hverja 4 manna fjölskyldu. Það er jafn mikið og 3 fullvaxnir Afríkufílar.

12 þús manns á lítilli eyju halda lífinu í 10 milljónum manna!!!!

Það er hellingur af góðum punktum í þessari skemmtilegu bók!!!

En ætla að melta þetta með að leggja þessa síðu niður....

Verð ein heima um helgina að passa liltu hvolpana mína:) Freydís sæta og litla snúllan hennar ætla að koma í heimsókn til mín, þannig að þessi helgi verður örugglega bara ágæt!!!

Bið að heilsa....


» 10 hafa sagt sína skoðun

09.01.2007 20:28:38 / lilja86

árið 2006 dregið saman

Ákvað að setja inn smá yfirlit yfir árið á punktaformi því seinasta ár var mjög svo viðburðaríkt fyrir mig:) Mikið ferðast og mikið af skemmtilegum hlutum!!!!

  • Árið byrjaði vel... skrapp heim yfir áramótin og var fram í jan heima og svo auðvitað var farið aftur til hamburgar:)
  • Fór á James Blunt tónleika
  • Stóð mig eins og hetja með 3 börn og hund
  • Skrapp til Cambridge til að hitta Heiðdísi. Mikið fjör þar
  • Var ein heima um páskana og gerði mikið af skemmtilegum hlutum á meðan með vinum mínum... skoðaði Hamburg vel
  • Systir mín gifti sig í maí og kom ég heim auðvitað til að vera viðstödd:) Tókst að bóka vitlausan dag... skemmtilegt það og tók við mjög svo skemmtilegt ferðalag!!!!
  • Upplifði langt sumar...
  • Skrapp til Berlínar með Bernd og það var draumi líkast:) Óteljandi hlutir sem ég gat gert þar....
  • Flaug paragliding
  • Fór í klettaklifur
  • Upplifði geggjaða stemmingu á meðan HM stóð yfir í Þýskalandi.... gerðist Fan number one fyrir Germany:) Fylgdist með leikjum í sólinni ásamt 100 þúsunda aðra!
  • Kom heim aftur til Dalvíkur í lok júniog var það mjög gott
  • Vann eins og vitleysingur allt sumarið
  • Skólinn byrjaði og gekk önnin mjög vel. Náði öllu með stæl!
  • Skrapp til Noregs í smá heimsókn sem var frábært:)
  • Fór til Reykjavíkur í drusluferð með öllum bestustu stelpunum mínum:) Leigðum okkur í miðbæ borg óttans og skemmtum okkur konunglega!
  • Allt í einu er komið jólafrí sem var gott. Vann mjög lítið. Snorri, Ellen og Casper komu öll frá Germany til að vera hjá okkur um jólin. Skemmtilegt að fá þau... Áramótin voru mjög skemmtileg... Skemmtileg tíðindi innan fjölskyldunnar....Endaði árið með stæl:)

Já.... þetta er dregið saman í mjög svo stuttu máli og ég held að eg sé fyrst að átta mig á því hvað ég ferðaðist ÓTRÚLEGA mikið!!!! Vá.... enda var þetta ár ólýsanlega gott:lol: Auðvitað komu leiðinlegir tímar en ætli allir geti ekki sagt það sama?????

Enda segir stjörnumerkið mitt það að fiskar hafa mikla þörf og ánægju að ferðast!! Hef alltaf fundist sá punktur skrítinn en ég held að ég geti eftir þetta ár verið alveg sammála:)

Takk fyrir mig.... Vona að árið verði enn betra!


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.01.2007 16:33:21 / lilja86

árið 2007

Gleðilegt nýtt ár gott fólk og takk fyrir það gamla:)

Árið byrjar bara vel held ég... get ekki beðið eftir að skólinn byrjar! Skrítið ég veit... en ég get ekki beðið eftir að klára þetta 20 maí ca:)

Það er brjálað að gera hjá mér í hundauppeldinu.... það er frekar sorglegt að þeir þurfi svo allir að fara bráðum:(

Kem með góðan pistil von bráðar....Er löt núna!

Bis spater....


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.12.2006 14:00:47 / lilja86

seinasta blogg ársins!!!

Tölvugúrúið er mætt á svæðið:)

Jólin eru búin að vera hreint frábær.... mikið búin að slpappa af!

Skrapp í sjallan annan á jólum og var það ágætt bara. síðan þá er ég búin að vera dugleg að fara út að labba og hafa gaman með vinkonum mínum!!!!!

Ætla að vera róleg í kvöld og vera bara edrú og skemmtileg:) Nenni hreint ekki að fara á fyllerí.... I am getting old!!!!!

Setti inn myndaalbúm síðan annan í jólum... og hvolparnir eru á leiðinni! Verð nú að sýna ykkur þá... þeir eru svo sætir!!!

Annars óska ég ykkur alls hins besta á nýju ári og vona að dagurinn í dag og kvöldið verði sem best:)

Kossar og knús


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.12.2006 08:06:20 / lilja86

Gleðileg Jól

Jæja... einn dagur til Jóla!!! Ég er á næturvakt núna í góðum fíling... bara einn og hálfur tími eftir:)

Snorri er komin heim sem er voða gott og komu með honum Ellen kærasta hans og Casper vinur hans og ætla að vera öll jólin! Þannig að það verður mikið stuð í Þórshamri skal ég segja ykkur.... við bætum við þau 7 hvolpum og einum hundi, Birni og Gyðu sem er pínu klikkuð og svo ég nottla og mamma og pabbi:) Fullt hús... ekki pláss fyrir fleiri!!!!

En ég hef verið betra heldur en þessa dagana.... Er að farast í bakinu og held að ég muni lifa á 600 mg íbúfeni öll jólin!!!! Kallaði út lækni á mið sem var alveg viss um að ég væri með nýrnasteina en ég var ekk alveg að gleypa það þannig að ég fór bara heim og borðaði töflur og síðan reyndist þetta alls ekki vera það! Bara aumingjskapur í mér:S Og ok.....

Ætla að njóta jólanna eins vel og ég get og vona að þið hin gerið það sama!

Ég óska ykkur gleðilegra jóla og farsælt komandi ár.... Hittumst hress á nýju ári og ef ekki fyrr:)

Þórgunnur------- í jólaskapi með ónýtt bak!!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.12.2006 10:44:39 / lilja86

Jóla jóla hvað!!!

Ok.... ég er að verða verri enn Hólmarinn hérna hvað varðar blogg!!!!

En.... ég er semsagt búin í prófum og gekk það bara allt vel:) Nokkuð ánægð með sjálfan mig! Maður á þetta til.... þegar maður nennir þessu:D

Er flutt á Dalvíkina fögru og ætla mjög líklega að keyra á milli eftir áramót. Ég íris og Björk ætlum að vera saman í því.... eða vonandi gengur það upp!

Ég er komin í ruuuusalegan jólafíling... Mamma er búin að vera óð í því að baka og ég nottla eitthvað að sniglast í kringum það með henni:) Húsið er mjög jólalegt og herbergið mitt er loksins orðið fínt og flott!!! Nóg að gera í hundauppeldinu.... það eru ekki nema 7 stykki af labrador hvolpum í Þórshamri:) Þeir eru samt algjörar dúllur og þeir stækka með hverjum deginu!

Tilhlökkun er rosaleg..... Allir að koma heim... eins og t.d Snorri bróðir, kærasta hans og vinur og Unnur gella og margir aðrir:) Gaman gaman....

Jæja... bara svona smá inform fyrir ykkur um mig þessar dagana.... Sjáið að það er ekki merkilegra en þetta!!! hehe

Sjáumst síðar gott fólk.... njótið þess að vera í jólafríi:)


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.12.2006 10:24:01 / lilja86

stutt...

Þetta verður bara stutt....

Reykjarvíkurferðin var geggjuð:) Skemmti mér alveg konunglega!!! ÉG Á LÍKA BESTU VINKONUR Í HEIMI!!!!! Ég elska allar dalvíkurdruslurnar mínar:)

Við borðuðum, hlógum, töluðum, borðuðum meira, versluðum, dönsuðum og hlógu enn meira:)

Annars er ég byrjuð í prófum... Var í íslensku í dag og gekk það  bara nokkuð vel:) á 3 eftir... ætla að reyna rúlla þeim upp!!!!

Set svo inn myndir seinna af nýju systkinum mínum:) Í Þórshamri eru 7 litlir labrador hvolpar!! Þvílík rassgöt:) Ef einhverjum langar í labrador þá just let me know!!!

Þórgunnur- Komin í Jólaskap:)


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 17
Klukkan
Leitarbox

Dagsetning
22. mars 2010
Minning